Edda og Smári

Velkomin

19.09.2008 13:07:35 / Edda

Dýrt

Gæti Icelandair ekki slept því að vera með mat i 3 tíma flugi og lækkað i staðin verðið hjá sér?

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 13:31:23 / Edda

Sunnudagur

Fékk prófið mitt til baka og fékk miklu betri einkun en ég hafði þorað að vona svo að ég er mjög ánægð:)

Annars er ég að fara að fá næsta próf afhent á miðvikudaginn en það er heim próf sem að ég hef 10 daga til að gera svo að það verður nóg að gera næstu daga.

Eyja Drífa var í heimsókn hjá mér um daginn og var það rosa gaman kíktum út á lífið fórum til Lundar og gerðum margt skemtilegt.

svo var afi hans Smára svo góður að sponsera ferð okkar heim um jólin svo að við erum við komin með flugmiða heim en  við komum heim 19 des og verðum til 14 jan, reyndar fer síðasta vikan í að gera heima próf en Smári ættlar að vinna á meðan.

En við erum farin að hlakka mjög til að koma heim.

Nóg í bili er reyndar að fara að hætta að nenna þessu bloggi en við sjáum til

KV:Edda


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 15:43:39 / Edda

...

Fór í fyrsta prófið mitt í dag og gekk bara vel.

Ættla að halda upp á það um helgina er að fara út að borða með Hertz á föstudaginn

annars allt gott að frétta

Kveðja Edda


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 16:02:45 / Edda

Nýjustu fréttir

Héðan er allt gott að frétta, mér gengur rosalega vel í skólanum og það er líka mjög gaman í skólanum kennarinn minn er svo áhugasamur um allt sem að hann er að kenna okkur svo að það er ekki hægt annað en að vera áhuga samur líka, um helgina vorum við með íslending í heimsókn hjá okkur hann Gilla vin hans Smára, við skelltum okkur á djammið með honum og drógum nokkra svía með, en það var rosalega gaman hjá okkur, þótt að dagurinn eftir hafi verið alveg hrikalega erfiður:)

Svo er mamma hans Smára líka á leiðinni en hún kemur ásamt Golfinum á laugardaginn og verður hjá okkur í 4 daga.

Bið að heilsa Edda

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 12:25:39 / Edda

Nýtt blogg

Já það er víst komin tími á nýtt blogg, en það er bara búið að vera nóg að gera upp á síðkastið, eftir að við komum heim frá íslandi þá unnum við í smá tíma, en drifum okkur svo til Berlínar þar sem að við vorum í viku. frá Berlínar ferðinni er það að sega að það var rosalega gaman hjá okkur fínt hótel á æðislegri staðsetningu og við skoðuðum mikið meðal annars nokkur söfn og svo að sjálfsögðu Berlínar múrinn, versluðum einnig aðeins og svo vorum við bara að njóta þess að vera í Berlín drukkum vín með hádegismatnum og höfðum rosa huggulegt vorum líka rosa heppin með veður þar sem að það var glampandi sól og 28 stiga hiti allan tíman, en það kom mér ekkert smá mikið á óvart hvað ég skildi mikið í þýskunni, við náðum alveg að bjarga okkur þarna þótt að þjóðverjar séu ekki þeir bestu í ensku. Svo eftir að við komum heim hittum við æmmu og afa í Köben og fórum með þeim að nó í bílinn sem að þau voru búin að leigja, en fórum svo heim að sofa enda frekar þreytt eftir ferðalagið, svo mætti ég einn dag í vinnu sem að var síðasti dagurinn minn þar og fór svo í skólann daginn eftir, en mér líst rosalega vel á þetta nám, þetta er rosa spennandi og ég get varla slitið námsbækurnar frá mér:)

En svo er ég svo heppin að það er líka ein íslensk stelpa með mér í bekk, sem að er mjög gaman :)

En svo síðustu helgi fór ég til Árhusa að hitta Soffíu og var það í tvær nætur en það var mjög gaman ég hef aldrei farið til árhúsa áður svo að það var mjög gaman að sjá þennan bæ sem að Soffía hefur talað svo mikið um, en þetta var mjög skemmtilegur bær og ekki leidist okkur þarna við kíktum út á lífið, skoðuðum kastala og bæinn en svo á sunnudeginum tók ég lestina heim, svo er ég bara búin að vera í skólanum og að læra, er reyndar líka byrjuð að fara út að labba með Önnu Lee en við ættlum að vera duglegar við það þangað til að það verður of kalt en þá ætlum við að kaupa okkur ræktar kort, maður verður að hreyfa sig eitthvað líka þegar að maður liggur í skóla bókunum allan daginn.

Kveðja Edda


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 19:23:53 / Edda

Komin heim

Jæja þá erum við komin heim eftir mjög skemmtilega ferð á íslandi þar sem að við skemmtum okkur mjög vel, það var rosalega gaman að hitta alla aftur eftir langan tíma og mér brá ekkert smá að sjá að Gísli Þór er orðinn stærri en ég, ég hélt smá teiti fyrir vínkonur mínar á föstudeginum eftir að við komum og það var rosa gaman og mikið hlegið að gömlum stundum:) Svo eyddi ég líka miklum tíma með Svenna og Eyju Drífu á Q bar sem að er sem sagt nýji vinnustaður (heimili þeirra) :)

Kíktum líka eina nótt með mömmu og Pabba til Grundarfjarðar og syntum í ísköldu vatninu veidum fisk og nutum okkar í sveitinni, en svo var komið að heim för aftur en einmitt kvöldið áður en að við fórum heim þá var teit hjá svenna svo að ég var eins og haugur daginn eftir þegar að við vorum að fara í flugið en sem betur fer var vélin hálftóm svo að ég og Smári fengum þrjú sæti bara fyrir okkur svo að ég gat sofið alla leiðina, svo daginn eftir tók bara við vinna og venjulega lífið, en í gær fór ég að hitta Svansý og nokkra aðra frækna íslendinga en það var mjög gaman, ég fór eftir vinnu að hitta þau en þau voru í cristaniu og það er ekkert smá skrítið að labba þarna inn allt í einu er maður bara komin inn í allt annað samfélag en við hengum þarna allt kvöldið í góðu yfirlæti með hvítvín og frábærann kínverskan mat.

En núna í kvöld erum við svo að fara í teiti til Mikka, svo að ég ætti kanski að fara að drífa mig.

Kveðja Edda


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 07:16:39 / Edda

Ísland

Kem til íslands í dag:) Bara 9 tímar eftir í vinunni og svo beint upp á flugvöll, hlakka ekkert smá mikið til að koma heim ég trúi valla að ég hafi ekki komið heim síðan um jólin. Hlakka til að hitta alla:) ég verð með íslenska númerið mitt 8664026 Sjáumst Edda

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 14:41:37 / Edda

mánudagur

Já það er kanski komin tími á blogg, en þar sem að það er svo langt síðan að ég bloggaði þá veit ég ekki alveg á hverju ég á að byrja. Það er frekar mikið búið að vera um að vera hjá okkur við erum flutt núna lukum því af um helgina og svo komu 3 fræknir íslendingar í heimsókn til okkar þar síðustu helgi og við skelltum okkur á tónleika og skoðuðum skemmtanalífið, það var rosa gaman að fá krakkana í heimsókn til okkar og var það góð upphitun fyrir komu okkar Smára til íslands sem að styttist óðum í. Annars erum við bara búin að vera að vinna á fullu og er það kanski ein af ástæðum þess að ég er ekki búin að vera duglegri að blogga en þegar að ég er búin að sitja fyrir framann tölvuna allan daginn þá nenni ég ekki að koma heim og setjast aftur fyrir framan tölvuna, svo er smári líka orðin þjóð frægur fyrir frábæra frammi stöðu í middsommar dansi og snafs söng, en á meðan að krakkarnir voru hér skemmti Smári sér í sýna fyrstu midsommar fest og skemmti sér alveg konunglega. En núna styttist líka í að við förum á okkar fyrstu sænsku festival, en þangað verður farið eftir tvær vikur, enda gátum við nú ekki alveg slept því að fara á úti hátíð þótt að við sleppum þjóðhátíð. En ég ættla að láta þetta gott heita í bili Kveðja Edda

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 08:36:41 / Edda

::::::::::

Sit í vinnunni að skemmta mér, það er ekkert að gera svo að ég ákvað að henda inn einu bloggi. Það hefur svo sem ekkert mikið á daga mína drifið, fórum í teiti til Önnu Lee á föstudaginn og svo á tónleika, ég var ekkert rosalega að fíla tónlistina en skemmti mér þó, svo var restinni af helginni bara eitt í leti og pizzu át:) Svo var ég í frí á mánudaginn svo að það er bara stutt vika núna sem að er mjög þægilegt. Núna styttist líka í að Svenni og Eyja Drífa komi þótt að það verði nú bara stutt stop hjá þeim, og svo komum við Smári í lok júlí og ég er farinn að hlakka ekkert smá mikið til það er allt of langt síðan að við vorum á íslandi síðast. En þetta er svona það helsta svo að ég læt þetta gott vera í bili. Kveðja Edda

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 09:56:59 / Edda

Þriðjudagur

Þá er Svenni farinn og ég sit hérna í vinnunni að láta mér leiðast, það var rosalega gaman að hafa Svenna hérna, og ekkert smá gaman hjá okkur, skelltum okkur aðeins á djammið en vorum líka bara að njóta þess að vera saman þar sem að við höfum ekki hist síðan um jólin,

En á miðvikudeginum skelltum við okkur í partý til önnu lee og svenni fékk að sjá íbúðina sem að við erum að fara að flytja í, í lok júní síðan skeltum við okkur öll á tónleika og skemmtum okkur rosavel, svo á fimmtudeginum vorum við bara að jafna okkur og hafa það huggulegt, síðan skelltu Smári og Svenni sér á djammið og sátu að sumbli langt fram eftir morgni, en ég fór snemma að sofa því að mín beið vinna á föstudeginum, kúrðum svo bara öll saman upp í sófa á föstudeginum og leigðum mynd eða ég og svenni leigðum mynd að okkar skapi og enginn nenti að horfa á hana nema við en okkur var alveg sama við skemmtum okkur konunglega, svo var afmæli hjá védísi á laugardeginum og svaka partý :)

En svo í gær yfir gaf svenni okkur og hélt heim á leið í snjókomuna.

En afi og amma komu með húsgögnin okkar Smára á Sunnudaginn og það er sko búið að vera jól hjá mér og Smára síðan, að taka upp úr öllum kössunum og fynna alskonar dót sem að maður var búin að gleyma eða sakna sárt.

En núna ættla ég á hádegismat.

Kveðja Edda

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 09:10:29 / Edda

Sunnudagur

Þá er komin nýr dagur og úrslit kosninganna ljós, ég og Smári héldum okkar eigið littla kosninga partý en við sátum hérna heima og horfðum á kosninga vökuna á netinu, ég nenni samt ekki að ræða þessar kosningar neitt frekar, þar sem að úrslitin voru ekki þau sem að ég hafði vonað. En annars er það að frétta að Svenni er að koma til okkar á þriðjudaginn og erum við með alveg þétt skipaða dagskrá næstu 6 daga, og býst ég við miklu fjöri hjá okkur, svo erum við líka búin að ákveða hvenær við komum heim í sumar en það verður 25 júlí og við verðum í 10 daga eða svo og það er mikil til hlökkun hér á bæ og svo erum við líka að fara til Berlínar í lok ágúst, en ég keypti far fyrir mig og Smára þangað á aðeins 700 dk fram og til baka.

Svo keypti ég mér sumarkjóla fyrir peningin sem að mamma gaf mér í snemm afmælisgjöf og þá byrjaði að rigna.

Kveðja Edda 


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:06:25 / Edda

::::

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér. 2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni. 3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé: xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca 4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má bjóða þér franskar með þessu?\" 5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir,,Innbox\" 6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót 7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso. 8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu. 9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum. 10. Ekki nota punkta. 11. Hoppaðu í stað þess að ganga. 12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað. 13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé,,taka með\". 14. Syngdu með í óperunni. 15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma. 16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga. 17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð. 18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu,Rock Hard. 19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 09:14:09 / Edda

Afmæli

Smári á afmæli í dag, en þar sem að hann á afmæli á þriðjudegin þá héldum við upp á það síðustu helgi, við buðum Brúnó og frú í mat og buðum við upp á íslenskt lambalæri og meðlæti, það var mjög vinsælt, enda alveg úrvals læri. Síðan sátum við bara að drykkju langt fram eftir nóttu og skemmtum okkur vel.

En á föstudeginum fór ég eftir vinnu og hitti hana Jönu sem að var með mér í mk en hún er að læra hérna í köben við setumst vitanlega á útikaffihús í góða veðrinu og sötrðum bjór og hvítvín, það var rosalega gaman hjá okkur og við enduðum á að skella okkur á alveg hörku djamm.

Svo í kvöld ættlum ég og Smári að halda upp á afmælið hans með því að fara að kjósa og í bíó.

Edda


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 08:46:15 / Edda

....

Sit inni í vinnunni en langar út að leika það er 20 stiga hiti úti og það ætti að vera bannað að láta fólk vinna inni í svona góðu veðri. Annars þá er mamma í heimsókn og það er búið að vera roslega gaman að hafa hana hérna fynnst að hún gæti nú bara sleppt því að fara heim. Svo á morgun er vinnana að fara að grilla og drekka í felleparken í góða veðrinu svo að það verður fjör. Annars hef ég ekki mikið að seiga frá, skellti mér á djammið í köben síðustu helgi og hitti alveg fullt af íslendingum, meðal annars gamla grunnskóla félaga og fleiri. Jæja best að snúa mér aftur að vinnunni Edda

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 08:13:22 / Edda

Sumar og sól

Á hverjum einasta morgni síðan að ég byrjaði í vinnunni þá hef ég á leið minni niðrá lestarstöð farið fram hjá tveimur rónum sem að sitja alltaf í sama strætóskýlinu og eru að skála fyrir sólaruppkomunni en í gær var bara annar þeirra á sínum stað og í morgun var hvorugur þeirra þar. Ég er orðin frekar áhyggjufull.

En annars er búið að lofa mér 20 stiga hita um helgina svo að helginni verður eitt út í garði í sólbaði.

Kveðja Edda


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Allt um Malmö
Hvað ættlar þú að gera?
Myndir
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010